Pétur Most: 2. Pétur stýrimaður

HÖFUNDUR

Sögurnar um Pétur Most eftir danska rithöfundinn Walter Christmas (1861-1924) voru vinsælar unglingabækur sem komu út á árunum 1967-1973. Urðu þær 5 talsins. Fyrsta bókin hét Pétur sjómaður, önnur Pétur stýrimaður, þriðja Pétur konungur, fjórða Háski á báðar hendur og sú síðasta Á Vígslóð. Sögurnar segja frá fátækum dönskum dreng sem ungur missir föður sinn og verður að standa á eigin fótum. Er hann ærið uppátækjasamur og lendir í mörgum skemmtilegum ævintýrum. Sögurnar sverja sig í ætt við sögur höfunda á borð við Frederick Marryat og henta vel öllum aldurshópum. Í þessari bók er Pétur orðinn stýrimaður og ræður sig á skip amerísks auðkýfings sem kallast Dik. Dik þessi hafði lent í útistöðum við Breta en þegar gerist eiga Bretar í stríði við Búa í Suður-Afríku. Hafði landstjóri Búa í Höfðaborg komist í hendur Breta en þeir félagar ákveða að sigla þangað og frelsa hann. Nú er bara að sjá hvernig fer. Björn Friðrik Brynjólfsson les.

Pétur Most: 2. Pétur stýrimaður

Sögurnar um Pétur Most eftir danska rithöfundinn Walter Christmas (1861-1924) voru vinsælar unglingabækur sem komu út á árunum 1967-1973. Urðu þær 5 talsins. Fyrsta bókin hét Pétur sjómaður, önnur Pétur stýrimaður, þriðja Pétur konungur, fjórða Háski á báðar hendur og sú síðasta Á Vígslóð.

Sögurnar segja frá fátækum dönskum dreng sem ungur missir föður sinn og verður að standa á eigin fótum. Er hann ærið uppátækjasamur og lendir í mörgum skemmtilegum ævintýrum. Sögurnar sverja sig í ætt við sögur höfunda á borð við Frederick Marryat og henta vel öllum aldurshópum.

Í þessari bók er Pétur orðinn stýrimaður og ræður sig á skip amerísks auðkýfings sem kallast Dik. Dik þessi hafði lent í útistöðum við Breta en þegar gerist eiga Bretar í stríði við Búa í Suður-Afríku. Hafði landstjóri Búa í Höfðaborg komist í hendur Breta en þeir félagar ákveða að sigla þangað og frelsa hann. Nú er bara að sjá hvernig fer.

Björn Friðrik Brynjólfsson les.

No items found.