Pétur Most 4: Háski á báðar hendur

HÖFUNDUR

Sögurnar um Pétur Most eftir danska rithöfundinn Walter Christmas (1861-1924) voru vinsælar unglingabækur sem komu út á íslensku árin 1967-1973. Urðu þær 5 talsins. Fyrsta hét Pétur sjómaður, önnur Pétur stýrimaður, þriðja Pétur konungur, fjórða Háski á báðar hendur og sú síðasta Á Vígslóð. Til gamans má geta þess að auk þess sem Walter Christmas var vinsæll rithöfundur var hann einnig sjóliðsforingi í danska hernum og stjórnaði leikhúsi svo eitthvað sé nefnt. Sögurnar segja frá fátækum dönskum dreng sem ungur missir föður sinn og verður að standa á eigin fótum. Er hann ærið uppátækjasamur og lendir í mörgum skemmtilegum ævintýrum. Í þessari fjórðu bók er Pétur enn staddur á eyjunni góðu sem hann lenti á í síðustu bók, Pétur konungur. Þó svo að hann hafi komið ár sinni vel fyrir borð þar ólgar spenna undir og hann sér marga öfundarmenn. Sagan sver sig í ætt við sögur eftir Robert Louis Stevenson og Frederick Marryat, þar sem atburðarásin er bæði hröð og spennandi. Ingólfur B. Kristjánsson les.

Pétur Most 4: Háski á báðar hendur

Sögurnar um Pétur Most eftir danska rithöfundinn Walter Christmas (1861-1924) voru vinsælar unglingabækur sem komu út á íslensku árin 1967-1973. Urðu þær 5 talsins. Fyrsta hét Pétur sjómaður, önnur Pétur stýrimaður, þriðja Pétur konungur, fjórða Háski á báðar hendur og sú síðasta Á Vígslóð. Til gamans má geta þess að auk þess sem Walter Christmas var vinsæll rithöfundur var hann einnig sjóliðsforingi í danska hernum og stjórnaði leikhúsi svo eitthvað sé nefnt.

Sögurnar segja frá fátækum dönskum dreng sem ungur missir föður sinn og verður að standa á eigin fótum. Er hann ærið uppátækjasamur og lendir í mörgum skemmtilegum ævintýrum.

Í þessari fjórðu bók er Pétur enn staddur á eyjunni góðu sem hann lenti á í síðustu bók, Pétur konungur. Þó svo að hann hafi komið ár sinni vel fyrir borð þar ólgar spenna undir og hann sér marga öfundarmenn. Sagan sver sig í ætt við sögur eftir Robert Louis Stevenson og Frederick Marryat, þar sem atburðarásin er bæði hröð og spennandi.

Ingólfur B. Kristjánsson les.

No items found.