Pétur Most: 5. Á vígslóð

HÖFUNDUR

Sögurnar um Pétur Most eftir danska rithöfundinn Walter Christmas (1861-1924) voru vinsælar unglingabækur sem komu út á árunum 1967-1973. Urðu þær 5 talsins. Sú fyrsta hét Pétur sjómaður, önnur Pétur stýrimaður, þriðja Pétur konungur, fjórða Háski á báðar hendur og sú síðasta Á Vígslóð. Til gamans má geta þess að auk þess sem Walter Christmas var vinsæll rithöfundur var hann einnig sjóliðsforingi í danska hernum og stjórnaði leikhúsi, svo eitthvað sé nefnt. Sögurnar segja frá fátækum dönskum dreng sem ungur missir föður sinn og verður að standa á eigin fótum. Er hann ærið uppátækjasamur og lendir í mörgum skemmtilegum ævintýrum. Á vígslóð er fimmta og síðasta sagan í bókaflokknum og nú hittum við Pétur fyrir þar sem hann er orðinn skipstjóri og skipseigandi. Eins og fyrri daginn eru ævintýrin skammt undan og í þessari bók verður á vegi hans ung og fögur hjúkrunarkona sem á eftir að hafa mikil áhrif á líf hans. Nú er bara að sjá hvernig fer fyrir Pétri í þessari lokasögu. Björn Friðrik Brynjólfsson les.

Pétur Most: 5. Á vígslóð

Sögurnar um Pétur Most eftir danska rithöfundinn Walter Christmas (1861-1924) voru vinsælar unglingabækur sem komu út á árunum 1967-1973. Urðu þær 5 talsins. Sú fyrsta hét Pétur sjómaður, önnur Pétur stýrimaður, þriðja Pétur konungur, fjórða Háski á báðar hendur og sú síðasta Á Vígslóð. Til gamans má geta þess að auk þess sem Walter Christmas var vinsæll rithöfundur var hann einnig sjóliðsforingi í danska hernum og stjórnaði leikhúsi, svo eitthvað sé nefnt. Sögurnar segja frá fátækum dönskum dreng sem ungur missir föður sinn og verður að standa á eigin fótum. Er hann ærið uppátækjasamur og lendir í mörgum skemmtilegum ævintýrum.

Á vígslóð er fimmta og síðasta sagan í bókaflokknum og nú hittum við Pétur fyrir þar sem hann er orðinn skipstjóri og skipseigandi. Eins og fyrri daginn eru ævintýrin skammt undan og í þessari bók verður á vegi hans ung og fögur hjúkrunarkona sem á eftir að hafa mikil áhrif á líf hans. Nú er bara að sjá hvernig fer fyrir Pétri í þessari lokasögu.

Björn Friðrik Brynjólfsson les.

No items found.