Jón skósmiður

HÖFUNDUR

Sagan Jón skósmiður eftir alþýðusnillinginn Theódór Friðriksson er í senn látlaus og stórbrotin skáldsaga, sem auk þess að segja sögu roskins skósmiðs í Reykjavík um miðja tuttugustu öld rekur sögu íslensku þjóðarinnar á þeim umbrotatímum þegar stríð geysaði úti í hinum stóra heimi og landið okkar var hernumið. Við kynnumst hernáminu með augum þessa glöggskyggna manns, ástandinu svokallaða, fjárplógsmönnum sem sjá gróðavon í nýjum tímum og þjóð sem þarf að aðlagast miklum breytingum og brjótast úr viðjum fortíðar, að ekki sé talað um framtíðarsýnina sem birtist okkur og er einkar forvitnileg. En bókin er ekki bara samtímaspegill því við kynnumst einnig lífi og raunum þessa geðfellda skósmiðs, konunni Ragnhildi Reynis, ungu stúlkunni Rúnu og athafnamanninum Eyjólfi kastanrassa – allt ótrúlega vel skapaðir og trúverðugir einstaklingar á ótrúlegum tímum. Það verður enginn svikinn af þessari frábæru sögu. Ingólfur B. Kristjánsson les.

Jón skósmiður

Sagan Jón skósmiður eftir alþýðusnillinginn Theódór Friðriksson er í senn látlaus og stórbrotin skáldsaga, sem auk þess að segja sögu roskins skósmiðs í Reykjavík um miðja tuttugustu öld rekur sögu íslensku þjóðarinnar á þeim umbrotatímum þegar stríð geysaði úti í hinum stóra heimi og landið okkar var hernumið. Við kynnumst hernáminu með augum þessa glöggskyggna manns, ástandinu svokallaða, fjárplógsmönnum sem sjá gróðavon í nýjum tímum og þjóð sem þarf að aðlagast miklum breytingum og brjótast úr viðjum fortíðar, að ekki sé talað um framtíðarsýnina sem birtist okkur og er einkar forvitnileg. En bókin er ekki bara samtímaspegill því við kynnumst einnig lífi og raunum þessa geðfellda skósmiðs, konunni Ragnhildi Reynis, ungu stúlkunni Rúnu og athafnamanninum Eyjólfi kastanrassa – allt ótrúlega vel skapaðir og trúverðugir einstaklingar á ótrúlegum tímum. Það verður enginn svikinn af þessari frábæru sögu.

Ingólfur B. Kristjánsson les.

No items found.