Rósa í síldinni

HÖFUNDUR

Sagan Rósa í síldinni mun hafa verið skrifuð árið 1933 en kom fyrst út í bók ásamt sögunni Grímu undir nafninu Tvær sögur árið 1945 að því er við best vitum. Er þetta frábær saga sem tekur rúmlega klukkustund í lestri. Þó svo að sagan sé ekki löng segir hún frá stórum örlögum, auk þess sem hún gefur hlustandanum góða innsýn í líf alþýðufólks á þessum erfiðu tímum. Persónusköpunin er látlaus en beitt og læðist að manni sá grunur að Theódór sé þarna að lýsa fólki sem hann þekkti sjálfur. Já, þeim tíma er vel varið sem eytt er í að hlusta á söguna um Rósu í síldinni. Ingólfur B. Kristjánsson les.

Rósa í síldinni

Sagan Rósa í síldinni mun hafa verið skrifuð árið 1933 en kom fyrst út í bók ásamt sögunni Grímu undir nafninu Tvær sögur árið 1945 að því er við best vitum. Er þetta frábær saga sem tekur rúmlega klukkustund í lestri. Þó svo að sagan sé ekki löng segir hún frá stórum örlögum, auk þess sem hún gefur hlustandanum góða innsýn í líf alþýðufólks á þessum erfiðu tímum. Persónusköpunin er látlaus en beitt og læðist að manni sá grunur að Theódór sé þarna að lýsa fólki sem hann þekkti sjálfur. Já, þeim tíma er vel varið sem eytt er í að hlusta á söguna um Rósu í síldinni.

Ingólfur B. Kristjánsson les.

No items found.