Dagsbrún

HÖFUNDUR

Dagsbrún er stutt skáldsaga eftir alþýðumeistarann Theódór Friðriksson. Er hún minna þekkt en mörg önnur verka hans enda gaf hann hana út undir dulnefninu Valur. Kom hún út árið 1915 og telst því til yngri verka höfundar. Theódór leit tilveruna öðrum augum en margir samtímamanna hans og allar sögur hans eiga það sameiginlegt að lýsa því umhverfi sem hann var sprottinn úr og skoða það í ljósi þeirra hræringa sem voru að eiga sér stað, en hann lifði mikla umbrotatíma. Sagan segir frá Grími nokkrum sem elst upp á heiðarbýli við fátækt og erfið skilyrði og bróður hans sem ákveður að flýja hokrið og leita fyrirheitna landsins í Ameríku. Skemmtileg saga sem færir hlustendum mikla innsýn inn í þessa tíma. Ingólfur B. Kristjánsson les.

Dagsbrún

Dagsbrún er stutt skáldsaga eftir alþýðumeistarann Theódór Friðriksson. Er hún minna þekkt en mörg önnur verka hans enda gaf hann hana út undir dulnefninu Valur. Kom hún út árið 1915 og telst því til yngri verka höfundar. Theódór leit tilveruna öðrum augum en margir samtímamanna hans og allar sögur hans eiga það sameiginlegt að lýsa því umhverfi sem hann var sprottinn úr og skoða það í ljósi þeirra hræringa sem voru að eiga sér stað, en hann lifði mikla umbrotatíma.

Sagan segir frá Grími nokkrum sem elst upp á heiðarbýli við fátækt og erfið skilyrði og bróður hans sem ákveður að flýja hokrið og leita fyrirheitna landsins í Ameríku. Skemmtileg saga sem færir hlustendum mikla innsýn inn í þessa tíma.

Ingólfur B. Kristjánsson les.

No items found.