Hákarlalegur og hákarlamenn

HÖFUNDUR

Bókina Hákarlalegur og hákarlamenn skrifaði Theódór að beiðni ýmissa framámanna sem vildu að sú þekking sem hann hafði á þessum atvinnuvegi, þessum stórmerka þætti í atvinnusögu okkar Íslendinga, glataðist ekki. Var hann m.a. kostaður af Sigurði Nordal þegar hann skrifaði bókina. Er hér um að ræða ómetanlega heimild um líf sem Theódór þekkti vel af eigin raun, þar sem dauðinn var sífellt nálægur og lífsbaráttan hörð. Theódór segir okkur hér frá því hvernig menn sóttu hákarl, hvaða nytjar var hægt að hafa af honum, frá mönnunum sem sóttu hann í hyldýpi hafsins og öðru sem þessu tengdist. Og hann segir okkur það á sinn ótrúlega látlausa og einfalda hátt þannig að við verðum næstum því þátttakendur í öllu saman. Slíkt geta bara snillingar. Theódór Friðriksson (1876-1948) rithöfundur var eitt af undrabörnum íslenskrar menningarsögu. Sjálfsævisaga hans Í verum kom út í tveim bindum árið 1941, og varð þegar í stað þekkt um allt land, lesin af ungum og gömlum, og dáð af öllum sem kunnu að meta vel sagða sögu á auðugu og hressilegu máli. Ingólfur B. Kristjánsson les.

Hákarlalegur og hákarlamenn

Bókina Hákarlalegur og hákarlamenn skrifaði Theódór að beiðni ýmissa framámanna sem vildu að sú þekking sem hann hafði á þessum atvinnuvegi, þessum stórmerka þætti í atvinnusögu okkar Íslendinga, glataðist ekki. Var hann m.a. kostaður af Sigurði Nordal þegar hann skrifaði bókina.

Er hér um að ræða ómetanlega heimild um líf sem Theódór þekkti vel af eigin raun, þar sem dauðinn var sífellt nálægur og lífsbaráttan hörð. Theódór segir okkur hér frá því hvernig menn sóttu hákarl, hvaða nytjar var hægt að hafa af honum, frá mönnunum sem sóttu hann í hyldýpi hafsins og öðru sem þessu tengdist. Og hann segir okkur það á sinn ótrúlega látlausa og einfalda hátt þannig að við verðum næstum því þátttakendur í öllu saman. Slíkt geta bara snillingar.

Theódór Friðriksson (1876-1948) rithöfundur var eitt af undrabörnum íslenskrar menningarsögu. Sjálfsævisaga hans Í verum kom út í tveim bindum árið 1941, og varð þegar í stað þekkt um allt land, lesin af ungum og gömlum, og dáð af öllum sem kunnu að meta vel sagða sögu á auðugu og hressilegu máli.

Ingólfur B. Kristjánsson les.

No items found.