Nokkrir fyrirlestrar (1. bindi)

HÖFUNDUR

Þorvaldur Guðmundsson fæddist að Marteinstungu í Holtahreppi hinum forna í Rangárvallasýslu 15. júní árið 1868. Foreldrar hans misstu allt sitt „harða vorið“ 1882 og eftir það ólst Þorvaldur upp við mikla fátækt. Vegna þess varð fátt um skólagöngu sem hann þráði mjög. En hann fann sína leið með því að sanka að sér bókum sem hann las spjaldanna á milli og byggði upp mikinn þekkingarbrunn. Þegar mest lét átti hann um 1400 íslenskar bækur sem í þá daga þótti gríðarlega stórt safn. Þegar faðir hans lést árið 1899 fluttist hann ásamt móður sinni til Reykjavíkur og hóf að vinna hjá Sigurði Kristjánssyni bóksala. Ekki leið á löngu áður en menn áttuðu sig á öllum þeim fróðleik sem hann bjó yfir og fengu hann til að halda fyrirlestra við ýmis tækifæri. Bogi Ólafsson safnaði þeim saman og gaf út árið 1921. Við höfum skipt þessu efni í tvær bækur. Í þessu fyrra bindi eru 10 fyrirlestrar. Fyrsti fyrirlesturinn fjallar um Ingimund gamla og sá síðasti um Pétur Einarsson (Gleraugna-Pétur). Eru þetta skemmtilegir og fróðlegir fyrirlestrar sem allt áhugafólk um íslenska sögu ættu að hafa gaman að. Jón B. Guðlaugsson les.

Nokkrir fyrirlestrar (1. bindi)

Þorvaldur Guðmundsson fæddist að Marteinstungu í Holtahreppi hinum forna í Rangárvallasýslu 15. júní árið 1868. Foreldrar hans misstu allt sitt „harða vorið“ 1882 og eftir það ólst Þorvaldur upp við mikla fátækt. Vegna þess varð fátt um skólagöngu sem hann þráði mjög. En hann fann sína leið með því að sanka að sér bókum sem hann las spjaldanna á milli og byggði upp mikinn þekkingarbrunn. Þegar mest lét átti hann um 1400 íslenskar bækur sem í þá daga þótti gríðarlega stórt safn. Þegar faðir hans lést árið 1899 fluttist hann ásamt móður sinni til Reykjavíkur og hóf að vinna hjá Sigurði Kristjánssyni bóksala. Ekki leið á löngu áður en menn áttuðu sig á öllum þeim fróðleik sem hann bjó yfir og fengu hann til að halda fyrirlestra við ýmis tækifæri. Bogi Ólafsson safnaði þeim saman og gaf út árið 1921. Við höfum skipt þessu efni í tvær bækur. Í þessu fyrra bindi eru 10 fyrirlestrar. Fyrsti fyrirlesturinn fjallar um Ingimund gamla og sá síðasti um Pétur Einarsson (Gleraugna-Pétur). Eru þetta skemmtilegir og fróðlegir fyrirlestrar sem allt áhugafólk um íslenska sögu ættu að hafa gaman að.

Jón B. Guðlaugsson les.

No items found.