Menn og menntir siðskiptaaldarinnar á Íslandi (1. hluti)

HÖFUNDUR

Hér á ferðinni fyrsta bindið í ritröðinni Menn og menntir siðskiptaaldarinnar á Íslandi og er hér fyrst og fremst verið að fjalla um Jón Arason biskup. Er óhætt að segja að það sé lykilrit um þennan tíma og er umföllunin mjög ítarleg og góð. Í grunninn er þetta rit um Jón Arason doktorsritgerð Páls. Þetta fyrsta bindi kom út árið 1919. Hefur þetta rit verið ófáanlegt um nokkurn tíma og ætti því að vera fengur öllum þeim sem áhuga hafa á íslenskri sögu. Páll Eggert fæddist á Stóru-Vogum á Vatnsleysuströnd 3. júní 1883. Foreldrar hans voru Óli Kristján Þorvarðsson, steinsmiður í Reykjavík, og Guðrún Jakobína Eyjólfsdóttir. Páll lauk stúdentsprófi frá Lærða skólanum 1905, cand.phil.-prófi 1906, embættisprófi í lögfræði við HÍ 1918 og hlaut doktorsnafnbót við HÍ 1919 fyrir rit sitt um Jón biskup Arason. Ritverk Páls eru feikimikil að vöxtum og munar þar um ritaskrá Landsbókasafnsins og skrá yfir rit háskólakennara. Þá tók hann saman lögfræðingatal en er líklega þekktastur fyrir samantekt á Íslenzkum æviskrám. Auk þess má nefna Menn og menntir siðskiptaaldarinnar á Íslandi I-IV, Upptök sálma og sálmalaga í lútherskum sið á Íslandi, Jón Sigurðsson I-V, og Sögu Íslendinga IV, V, og fyrri hluta VI bindis. Jón B. Guðlaugsson les.

Menn og menntir siðskiptaaldarinnar á Íslandi (1. hluti)

Hér á ferðinni fyrsta bindið í ritröðinni Menn og menntir siðskiptaaldarinnar á Íslandi og er hér fyrst og fremst verið að fjalla um Jón Arason biskup. Er óhætt að segja að það sé lykilrit um þennan tíma og er umföllunin mjög ítarleg og góð. Í grunninn er þetta rit um Jón Arason doktorsritgerð Páls. Þetta fyrsta bindi kom út árið 1919. Hefur þetta rit verið ófáanlegt um nokkurn tíma og ætti því að vera fengur öllum þeim sem áhuga hafa á íslenskri sögu.

Páll Eggert fæddist á Stóru-Vogum á Vatnsleysuströnd 3. júní 1883. Foreldrar hans voru Óli Kristján Þorvarðsson, steinsmiður í Reykjavík, og Guðrún Jakobína Eyjólfsdóttir. Páll lauk stúdentsprófi frá Lærða skólanum 1905, cand.phil.-prófi 1906, embættisprófi í lögfræði við HÍ 1918 og hlaut doktorsnafnbót við HÍ 1919 fyrir rit sitt um Jón biskup Arason.

Ritverk Páls eru feikimikil að vöxtum og munar þar um ritaskrá Landsbókasafnsins og skrá yfir rit háskólakennara. Þá tók hann saman lögfræðingatal en er líklega þekktastur fyrir samantekt á Íslenzkum æviskrám. Auk þess má nefna Menn og menntir siðskiptaaldarinnar á Íslandi I-IV, Upptök sálma og sálmalaga í lútherskum sið á Íslandi, Jón Sigurðsson I-V, og Sögu Íslendinga IV, V, og fyrri hluta VI bindis.

Jón B. Guðlaugsson les.

No items found.
***