Nokkrir fyrirlestrar (2. bindi)

HÖFUNDUR

Þorvaldur Guðmundsson fæddist að Marteinstungu í Holtahreppi hinum forna í Rangárvallasýslu 15. júní árið 1868. Foreldrar hans misstu allt sitt „harða vorið“ 1882 og eftir það ólst Þorvaldur upp við mikla fátækt. Vegna þess varð fátt um skólagöngu sem hann þráði mjög. En hann fann sína leið með því að sanka að sér bókum sem hann las spjaldanna á milli og byggði upp mikinn þekkingarbrunn. Þegar mest lét átti hann um 1400 íslenskar bækur sem í þá daga þótti gríðarlega stórt safn. Þegar faðir hans lést árið 1899 fluttist hann ásamt móður sinni til Reykjavíkur og hóf að vinna hjá Sigurði Kristjánssyni bóksala. Ekki leið á löngu áður en menn áttuðu sig á öllum þeim fróðleik sem hann bjó yfir og fengu hann til að halda fyrirlestra við ýmis tækifæri. Bogi Ólafsson safnaði þeim saman og gaf út árið 1921. Við höfum skipt þessu efni í tvær bækur. Í þessu síðara bindi eru 11 fyrirlestrar. Fyrsti fyrirlesturinn fjallar um Jón biskup Arason en sá síðasti um Bessastaði. Við viljum sérstaklega benda hlustendum á fyrirlesturinn Þorraþrælsbylurinn í Odda eða saga Oddastaðar 1780-1810 sem er einkar skemmtilegur. En allt eru þetta skemmtilegir og fróðlegir fyrirlestrar sem áhugafólk um íslenska sögu má ekki láta framhjá sér fara. Jón B. Guðlaugsson les.

Nokkrir fyrirlestrar (2. bindi)

Þorvaldur Guðmundsson fæddist að Marteinstungu í Holtahreppi hinum forna í Rangárvallasýslu 15. júní árið 1868. Foreldrar hans misstu allt sitt „harða vorið“ 1882 og eftir það ólst Þorvaldur upp við mikla fátækt. Vegna þess varð fátt um skólagöngu sem hann þráði mjög. En hann fann sína leið með því að sanka að sér bókum sem hann las spjaldanna á milli og byggði upp mikinn þekkingarbrunn. Þegar mest lét átti hann um 1400 íslenskar bækur sem í þá daga þótti gríðarlega stórt safn. Þegar faðir hans lést árið 1899 fluttist hann ásamt móður sinni til Reykjavíkur og hóf að vinna hjá Sigurði Kristjánssyni bóksala. Ekki leið á löngu áður en menn áttuðu sig á öllum þeim fróðleik sem hann bjó yfir og fengu hann til að halda fyrirlestra við ýmis tækifæri. Bogi Ólafsson safnaði þeim saman og gaf út árið 1921. Við höfum skipt þessu efni í tvær bækur. Í þessu síðara bindi eru 11 fyrirlestrar. Fyrsti fyrirlesturinn fjallar um Jón biskup Arason en sá síðasti um Bessastaði. Við viljum sérstaklega benda hlustendum á fyrirlesturinn Þorraþrælsbylurinn í Odda eða saga Oddastaðar 1780-1810 sem er einkar skemmtilegur. En allt eru þetta skemmtilegir og fróðlegir fyrirlestrar sem áhugafólk um íslenska sögu má ekki láta framhjá sér fara.

Jón B. Guðlaugsson les.

No items found.