Út í blámann

HÖFUNDUR

Út í blámann er skáldsaga/barnasaga eftir Eystein Björnsson sem kom út árið 2002. Er þetta stórskemmtileg saga sem segir sögu lítillar maríuerlu sem ákveður að verða eftir á landinu bláa þegar hinar erlurnar fljúga til suðrænni landa að afliðnu sumri. Sagan lýsir baráttu hennar við við náttúruöflin og því sem á daga hennar drífur á meðan hún bíður birtunnar og blámans að nýju. Hún leitar ráða hjá Ljósfeldi og Rauðkolli, Háfæti og frú Dröfn, en Alhvítur reynist henni sannur vinur þegar í harðbakkann slær. Sagan er einstaklega skemmtilega skrifuð enda hefur höfundur mikið vald á tungunni og býr til áhugaverð nýyrði jöfnum höndum og þó svo að hún virðist við fyrstu sýn helst eiga erindi við ungu kynslóðina býr mun meira í henni og auðvelt að yfirfæra hana upp á okkur mannfólkið. Það verður enginn svikinn af þessari sögu. Höfundur sjálfur les.

Út í blámann

Út í blámann er skáldsaga/barnasaga eftir Eystein Björnsson sem kom út árið 2002. Er þetta stórskemmtileg saga sem segir sögu lítillar maríuerlu sem ákveður að verða eftir á landinu bláa þegar hinar erlurnar fljúga til suðrænni landa að afliðnu sumri. Sagan lýsir baráttu hennar við við náttúruöflin og því sem á daga hennar drífur á meðan hún bíður birtunnar og blámans að nýju. Hún leitar ráða hjá Ljósfeldi og Rauðkolli, Háfæti og frú Dröfn, en Alhvítur reynist henni sannur vinur þegar í harðbakkann slær. Sagan er einstaklega skemmtilega skrifuð enda hefur höfundur mikið vald á tungunni og býr til áhugaverð nýyrði jöfnum höndum og þó svo að hún virðist við fyrstu sýn helst eiga erindi við ungu kynslóðina býr mun meira í henni og auðvelt að yfirfæra hana upp á okkur mannfólkið. Það verður enginn svikinn af þessari sögu.

Höfundur sjálfur les.

No items found.
***