The Rainbow
Skáldsagan The Rainbow eftir D. H. Lawrence kom fyrst út árið 1915. Hér segir frá lífi og ástum þriggja kynslóða hinnar ensku Brangwen-fjölskyldu, frá miðri nítjándu öld og fram á þá tuttugustu, og leit þeirra að lífsfyllingu innan takmarka samfélags þess tíma. Sagan var bönnuð í Bretlandi um tíma sökum frjálslegrar umfjöllunar um kynferðismál. Sjónvarpsmynd var gerð eftir sögunni á vegum BBC árið 1988, og árið eftir kom út kvikmynd byggð á sögunni í leikstjórn Ken Russell. The Rainbow hefur af ýmsum verið talin ofarlega á lista bestu og áhrifamestu skáldverka enskra og vestrænna bókmennta. Framhald sögunnar, skáldsagan Women in Love, kom út árið 1920. Tony Foster les á ensku.