Tevje kúabóndi og dætur hans
Tevje kúabóndi og dætur hans er safn samtengdra smásagna þar sem Tevje segir frá viðskiptum sínum, hjónabandsraunum dætra sinna sex og harmrænum örlögum Gyðinga á grátbroslegan hátt. Mörg leikverk og kvikmyndir hafa verið byggð á þessum sögum, þar á meðal söngleikurinn Fiðlarinn á þakinu. Sholom Aleichem var dulnefni rithöfundarins og leikskáldsins Solomon Rabinovich (1859-1916), en hann var einn virtasti rithöfundur Gyðinga og frumkvöðull í því að skrifa bókmenntir á jiddísku. Ingibjörg Bergþórsdóttir þýddi. Björn Björnsson les.