Sól á heimsenda

HÖFUNDUR

Sagan Sól á heimsenda eftir Matthías Johannessen kom út hjá Almenna bókafélaginu árið 1987. Vakti hún töluverða athygli á þeim tíma enda höfundurinn betur þekktur sem ljóðskáld en skáldsagnahöfundur. Sagan sem er bráðskemmtileg aflestrar ber enda ljóðskáldinu Matthíasi glöggt vitni, enda textinn ljóðrænn og oft á tíðum draumkenndur og þá er myndmál sögunnar einstaklega skemmtilegt og sterkt. Sagan er öðrum þræði ferðasaga, en þó er ferðalagið meir notað sem áhugaverð umgjörð utan um almennar hugleiðingar og minningar aðalpersónunnar. Það sem vekur kannski mesta athygli í sögunni er hvernig Matthías vinnur með tímahugtakið. Samspil mannsins, konunnar og drengsins sem saman mynda aðalpersónurnar spannar mun lengri tíma en ferðalagið nær yfir og tekst höfundi listilega vel að halda utan um slíkt los með því að láta atburðarás ferðalagsins halda utan um alla þræði. Það er rétt að vekja athygli á því að sagan gerist í Algarve í Portúgal þar sem margir Íslendingar hafa verið og Matthías notar umhverfið á næman hátt til að skapa atburðum sögunnar stemningu sem margir ættu að geta fundið sig í. Það er Matthías Johannessen sjálfur sem les söguna.

Sól á heimsenda

Sagan Sól á heimsenda eftir Matthías Johannessen kom út hjá Almenna bókafélaginu árið 1987. Vakti hún töluverða athygli á þeim tíma enda höfundurinn betur þekktur sem ljóðskáld en skáldsagnahöfundur. Sagan sem er bráðskemmtileg aflestrar ber enda ljóðskáldinu Matthíasi glöggt vitni, enda textinn ljóðrænn og oft á tíðum draumkenndur og þá er myndmál sögunnar einstaklega skemmtilegt og sterkt.

Sagan er öðrum þræði ferðasaga, en þó er ferðalagið meir notað sem áhugaverð umgjörð utan um almennar hugleiðingar og minningar aðalpersónunnar. Það sem vekur kannski mesta athygli í sögunni er hvernig Matthías vinnur með tímahugtakið. Samspil mannsins, konunnar og drengsins sem saman mynda aðalpersónurnar spannar mun lengri tíma en ferðalagið nær yfir og tekst höfundi listilega vel að halda utan um slíkt los með því að láta atburðarás ferðalagsins halda utan um alla þræði. Það er rétt að vekja athygli á því að sagan gerist í Algarve í Portúgal þar sem margir Íslendingar hafa verið og Matthías notar umhverfið á næman hátt til að skapa atburðum sögunnar stemningu sem margir ættu að geta fundið sig í.

Það er Matthías Johannessen sjálfur sem les söguna.

No items found.
***