Saga Abrahams Lincolns Bandaríkjaforseta
Ævi Abrahams Lincolns var viðburðarík og oft erfið. Í þessar ævisögu lýsir Bjarni Jónsson kennari því hvernig Lincoln brýst út úr sárri fátækt og verður lögmaður, stjórnmálamaður og að lokum forseti Bandaríkjanna. Þyrnum stráðri forsetatíð sem einkenndist af Þrælastríðinu er lýst ítarlega, sem og dauða hans fyrir morðingja hendi. Hér kynnist lesandinn persónu Lincolns, sem er um margt öðruvísi en flestra annarra forseta Bandaríkjanna. Hallgrímur Indriðason les.