Norðurlandasaga
Norðurlandasaga, eða Dana, Norðmanna og Svía saga eftir Pál Melsteð er hreint ótrúlega áhugaverð og skemmtileg bók. Og þrátt fyrir að hafa komið út árið 1891 er hún á afar auðveldu máli og skýr í allri framsetningu, eins og við var að búast frá svo öflugum manni sem Páll var. Í bókinni rekur Páll sögu þessara þriggja ríkja frá upphafi fram til 1863. Hér kynnumst við öllum þeim höfðingjum sem ríktu og börðust um völdin í þessum ríkjum og þá líka Íslandi, þó saga okkar sé ekki fyrirferðarmikil í þessari bók. Bókin skiptist í þrjá meginkafla: Fornöldin til 1060, Miðöldin frá 1060 til 1523 og Nýja öldin frá 1523 til 1872. Bókin var gefin út af Hinu íslenska bókmenntafélagi árið 1891. Þeir sem hafa áhuga á vandaðri en jafnframt aðgengilegri og skemmtilegri sagnfræði ættu ekki að láta þessa bók framhjá sér fara. Ingólfur B. Kristjánsson les.