Íslandsferð 1858 (2. hluti)

HÖFUNDUR

Konrad Maurer (1823-1902) var þýskur réttarsagnfræðingur, þjóðfræðingur og norrænufræðingur sem ferðaðist um Ísland árið 1858. Á ferð sinni safnaði hann íslenskum þjóðsögum (sem gefnar voru út í Leipzig árið 1886), rannsakaði sögustaði og lagði sig almennt fram um að kynnast landi og þjóð. Á ferðinni hélt hann einnig nokkuð ítarlega dagbók og skrifaði síðar ferðasögu upp úr henni. Lá sú saga lengi gleymd og grafin en fannst árið 1972. Á þýsku er hún aðeins til í handriti en var þýdd á íslensku af Baldri Hafstað og gefin út árið 1997. Eftir ferð sína hingað var Maurer alla tíð mikill Íslandsvinur og má segja að hann hafi verið einn af helstu bandamönnum landsins á 19. öldinni. Frá árinu 1856 gerðist hann talsmaður sjálfstæðis Íslands og studdi Jón Sigurðsson í sjálfstæðisbaráttu hans. Við fengum góðfúslegt leyfi Baldurs til að lesa söguna og bjóða ykkur hana hér á Hlusta.is. Vegna lengdar ákváðum við að skipta henni í þrjá hluta. Í þessum öðrum hluta ferðasögu Maurers fylgjum við honum norður Sprengisand, frá Bárðardal að Húnaflóa og um Húnaþing og Dali. Jón B. Guðlaugsson les.

Íslandsferð 1858 (2. hluti)

Konrad Maurer (1823-1902) var þýskur réttarsagnfræðingur, þjóðfræðingur og norrænufræðingur sem ferðaðist um Ísland árið 1858. Á ferð sinni safnaði hann íslenskum þjóðsögum (sem gefnar voru út í Leipzig árið 1886), rannsakaði sögustaði og lagði sig almennt fram um að kynnast landi og þjóð. Á ferðinni hélt hann einnig nokkuð ítarlega dagbók og skrifaði síðar ferðasögu upp úr henni. Lá sú saga lengi gleymd og grafin en fannst árið 1972. Á þýsku er hún aðeins til í handriti en var þýdd á íslensku af Baldri Hafstað og gefin út árið 1997.

Eftir ferð sína hingað var Maurer alla tíð mikill Íslandsvinur og má segja að hann hafi verið einn af helstu bandamönnum landsins á 19. öldinni. Frá árinu 1856 gerðist hann talsmaður sjálfstæðis Íslands og studdi Jón Sigurðsson í sjálfstæðisbaráttu hans.

Við fengum góðfúslegt leyfi Baldurs til að lesa söguna og bjóða ykkur hana hér á Hlusta.is. Vegna lengdar ákváðum við að skipta henni í þrjá hluta. Í þessum öðrum hluta ferðasögu Maurers fylgjum við honum norður Sprengisand, frá Bárðardal að Húnaflóa og um Húnaþing og Dali.

Jón B. Guðlaugsson les.

No items found.
***