Í verum (1. bindi)

HÖFUNDUR

Theódór Friðriksson (1876-1948) rithöfundur var eitt af undrabörnum íslenskrar menningarsögu. Sjálfsævisaga hans Í verum kom út í tveim bindum árið 1941 og varð þegar í stað þekkt um allt land, lesin af ungum og gömlum, og dáð af öllum sem kunnu að meta vel sagða sögu á auðugu og hressilegu máli. Er þetta einstæð saga og klassísk heimild um lífskjör alþýðumanna í sjávarplássum og á afskekktum stöðum eins og norður í Fjörðum á seinni hluta 19. aldar og í byrjun 20. aldar. Sagan skiptist í sjö meginþætti og ákváðum við á Hlusta.is að gefa hana út í fjórum bindum í stað tveggja. Í þessu fyrsta segir frá uppvaxtarárum Theódórs í Flatey á Skjálfanda þar sem hann bjó til sextán ára aldurs. Þá flytur hann í Fjörður, fyrst að Þönglabakka í Þorgeirsfirði og síðan að Gili í Hvalvatnsfirði. Þessum hluta lýkur er hann er eitt ár í húsmennsku á Botni í Þorgeirsfirði með konu sinni Sigurlaugu Jónasdóttur. Ingólfur B. Kristjánsson les.

Í verum (1. bindi)

Theódór Friðriksson (1876-1948) rithöfundur var eitt af undrabörnum íslenskrar menningarsögu. Sjálfsævisaga hans Í verum kom út í tveim bindum árið 1941 og varð þegar í stað þekkt um allt land, lesin af ungum og gömlum, og dáð af öllum sem kunnu að meta vel sagða sögu á auðugu og hressilegu máli. Er þetta einstæð saga og klassísk heimild um lífskjör alþýðumanna í sjávarplássum og á afskekktum stöðum eins og norður í Fjörðum á seinni hluta 19. aldar og í byrjun 20. aldar. Sagan skiptist í sjö meginþætti og ákváðum við á Hlusta.is að gefa hana út í fjórum bindum í stað tveggja. Í þessu fyrsta segir frá uppvaxtarárum Theódórs í Flatey á Skjálfanda þar sem hann bjó til sextán ára aldurs. Þá flytur hann í Fjörður, fyrst að Þönglabakka í Þorgeirsfirði og síðan að Gili í Hvalvatnsfirði. Þessum hluta lýkur er hann er eitt ár í húsmennsku á Botni í Þorgeirsfirði með konu sinni Sigurlaugu Jónasdóttur.

Ingólfur B. Kristjánsson les.

No items found.