Hundaþúfan og hafið
Hundaþúfan og hafið er fyrri viðtalsbókin af tveimur þar sem Matthías Johannessen ræðir við Pál Ísólfsson. Matthías nálgast efnið á varfærinn og gamansaman hátt eins og honum einum er lagið er hann gefur okkur innsýn í stórbrotinn heim Páls sem var einn mesti listamaður síns tíma. Í bókinni koma saman þessir tveir jöfrar íslenskrar menningar og úr verður fróðleg og stórskemmtileg lesning. Björn Björnsson les.