Á ferð: Minningar

HÖFUNDUR

Ásmundur Gíslason var fæddur að Þverá í Dalsmynni í Suður-Þingeyjarsýslu 21. ágúst 1872. Foreldrar hans voru Gísli Ásmundsson bóndi þar og kona hans Þorbjörg Ásgeirsdóttir. Var Gísli bróðir hins þjóðkunna gáfumanns Einars í Nesi. Séra Ásmundur útskrifaðist úr Reykjavíkurskóla vorið 1892 og úr prestaskólanum 1894. Hann vígðist 25. ágúst 1895 sem aðstoðarprestur til séra Guðmundar Helgasonar að Bergstöðum og voru veittir Bergstaðir árið eftir. Árið 1904 var honum veittur Háls í Fnjóskadal og var hann prestur þar til 1. júní 1936, er hann lét af preststörfum og fluttist til Reykjavíkur. Hann var kvæntur Önnu Pétursdóttur frá Vestdal á Seyðisfirði, hinni ágætustu konu, en hún andaðist 1936. Hann var prófastur í Suður-Þingeyjarprófastsdæmi frá 1913-1936. Árið 1946 gaf hann út endurminningar sínar og kallaði bókina Á ferð. Er þetta stórskemmtileg frásögn af lífi höfundar og um leið frábær samtímalýsing þar sem hann segir m.a. frá hátíðinni á Þingvöllum 1944. Guðmundur Ingi Kristjánsson les.

Á ferð: Minningar

Ásmundur Gíslason var fæddur að Þverá í Dalsmynni í Suður-Þingeyjarsýslu 21. ágúst 1872. Foreldrar hans voru Gísli Ásmundsson bóndi þar og kona hans Þorbjörg Ásgeirsdóttir. Var Gísli bróðir hins þjóðkunna gáfumanns Einars í Nesi. Séra Ásmundur útskrifaðist úr Reykjavíkurskóla vorið 1892 og úr prestaskólanum 1894. Hann vígðist 25. ágúst 1895 sem aðstoðarprestur til séra Guðmundar Helgasonar að Bergstöðum og voru veittir Bergstaðir árið eftir. Árið 1904 var honum veittur Háls í Fnjóskadal og var hann prestur þar til 1. júní 1936, er hann lét af preststörfum og fluttist til Reykjavíkur. Hann var kvæntur Önnu Pétursdóttur frá Vestdal á Seyðisfirði, hinni ágætustu konu, en hún andaðist 1936. Hann var prófastur í Suður-Þingeyjarprófastsdæmi frá 1913-1936. Árið 1946 gaf hann út endurminningar sínar og kallaði bókina Á ferð. Er þetta stórskemmtileg frásögn af lífi höfundar og um leið frábær samtímalýsing þar sem hann segir m.a. frá hátíðinni á Þingvöllum 1944.

Guðmundur Ingi Kristjánsson les.

No items found.
***