Þyrnar

HÖFUNDUR

Þó svo að Þorsteinn hafi ort mikið frá unga aldri var það fyrst árið 1897 að ljóð hans voru birt á bók. Var það fyrir tilverknað Odds Björnssonar á Akureyri, en bókin fékk nafnið Þyrnar. Framan af voru ljóð Þorsteins hefðbundin í stíl og umgerð, og hann sótti yrkisefnin í sveitina og landið. Áhrif frá Steingrími Thorsteinssyni og Benedikt Gröndal leyndu sér ekki. Í Kaupmannahöfn kynntist Þorsteinn sósíalisma sem hann tók fagnandi og afneitaði af sömu ákefð kristinni trú. Upp frá því fór hann að sækja í önnur yrkisefni og ljóð hans urðu beinskeyttari og full af skoðunum á samfélaginu í kringum hann. Sigurður Nordal ritaði inngang. Borgþór Arngrímsson les.

Þyrnar

Þó svo að Þorsteinn hafi ort mikið frá unga aldri var það fyrst árið 1897 að ljóð hans voru birt á bók. Var það fyrir tilverknað Odds Björnssonar á Akureyri, en bókin fékk nafnið Þyrnar. Framan af voru ljóð Þorsteins hefðbundin í stíl og umgerð, og hann sótti yrkisefnin í sveitina og landið. Áhrif frá Steingrími Thorsteinssyni og Benedikt Gröndal leyndu sér ekki. Í Kaupmannahöfn kynntist Þorsteinn sósíalisma sem hann tók fagnandi og afneitaði af sömu ákefð kristinni trú. Upp frá því fór hann að sækja í önnur yrkisefni og ljóð hans urðu beinskeyttari og full af skoðunum á samfélaginu í kringum hann.

Sigurður Nordal ritaði inngang.

Borgþór Arngrímsson les.

No items found.