Sögur úr Vesturbænum
Sögur úr Vesturbænum er skáldsaga eftir Matthías Johannessen ritstjóra og skáld sem kom fyrst út á bók árið 2014 hjá bókaforlaginu Sæmundi. Sagan er nokkurs konar minningasaga og byggir að einhverju leyti á reynslu höfundar sjálfs en í henni kynnumst við alls kyns skemmtilegu fólki og hittum fyrir þjóðþekktar persónur. Hér er á ferðinni skemmtilegt og áhugavert skáldverk sem vísar sterklega til raunverulegra atburða og manna. Kristján Róbert Kristjánsson les.