Siddhartha
Siddhartha: An Indian Tale eftir Hermann Hesse kom fyrst út á þýsku árið 1922 og svo í enskri þýðingu í Bandaríkjunum árið 1951. Hér segir frá piltinum Siddhartha og leit hans að sjálfsþekkingu og andlegri uppljómun. Hermann Hesse (1877-1962) var þýskur rithöfundur, skáld og listmálari. Hann hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels árið 1946. Sagan Siddhartha er þýdd á ensku af Gunther Olesch, Anke Dreher, Amy Coulter, Stefan Langer og Semyon Chaichenets. Þessi saga er lesin á ensku. Adrian Praetzellis les.