Síðasti móhíkaninn

HÖFUNDUR

Sagan Síðasti móhíkaninn (The Last of the Mohicans) eftir James Fenimore Cooper er önnur bókin í fimm rita sagnaflokki sem fjallar um veiðimanninn Natty Bumppo og besta vin hans indíánahöfðingjann Chingachgook sem ferðast um óbyggðir Ameríku og lifa á veiðum. Sagan kom út árið 1826 og hefur síðan verið ein af vinsælustu skáldsögum enskra bókmennta. Þessar sígildu sögur eru spennandi og skemmtilegar og áhugaverðar um margt. Auk þess sem þær fjalla um viðburðaríkt líf og örlög aðalpersónanna lýsa þær á sama tíma hvernig lífið þróaðist á þessum árum sem sögurnar gerast á sem er frá miðri átjándu öld fram að aldamótum, þegar náttúran þarf að víkja vegna aukinnar fólksfjölgunar. Þá vilja margir meina að Fenimore hafi fyrstur manna skrifað um indíána sem lifandi manneskjur af holdi og blóði. Eru þetta stórkostlegar sögur sem gefa okkur innsýn inn í horfna heima og verður enginn svikinn af þeim. Ingólfur B. Kristjánsson les.

Síðasti móhíkaninn

Sagan Síðasti móhíkaninn (The Last of the Mohicans) eftir James Fenimore Cooper er önnur bókin í fimm rita sagnaflokki sem fjallar um veiðimanninn Natty Bumppo og besta vin hans indíánahöfðingjann Chingachgook sem ferðast um óbyggðir Ameríku og lifa á veiðum. Sagan kom út árið 1826 og hefur síðan verið ein af vinsælustu skáldsögum enskra bókmennta.

Þessar sígildu sögur eru spennandi og skemmtilegar og áhugaverðar um margt. Auk þess sem þær fjalla um viðburðaríkt líf og örlög aðalpersónanna lýsa þær á sama tíma hvernig lífið þróaðist á þessum árum sem sögurnar gerast á sem er frá miðri átjándu öld fram að aldamótum, þegar náttúran þarf að víkja vegna aukinnar fólksfjölgunar. Þá vilja margir meina að Fenimore hafi fyrstur manna skrifað um indíána sem lifandi manneskjur af holdi og blóði. Eru þetta stórkostlegar sögur sem gefa okkur innsýn inn í horfna heima og verður enginn svikinn af þeim.

Ingólfur B. Kristjánsson les.

No items found.
***