Óvænti gesturinn
Óvænti gesturinn er skemmtileg smásaga sem segir frá ungri stúlku sem er ein heima en uppgötvar skyndilega sér til skelfingar að hún er ekki ein í húsinu eins og hún hélt. Ekki er höfundar getið að sögunni en hún er þýdd af Ólafi Ólafssyni frá Guttormshaga (1855-1937) og kom út árið 1893. Ólafur þessi var kunnur á sínum tíma fyrir hina frábæru bók Hjálpaðu þér sjálfur sem kom út árið 1892 og var gríðarlega vinsæl. Var sú bók byggð á bókinni Self-Help eftir Samuel Smiles. Ingólfur B. Kristjánsson les.