Dagbók vesturfara: 1. bindi (1902-1918)
Hér birtist dagbók vestur-íslenska rithöfundarins Jóhanns Magnúsar Bjarnasonar (1866-1945), fyrsta bindið af þremur, og nær það yfir árin 1902-1918. Dagbókin varpar ómetanlegu ljósi á líf og starf eins af okkar merkustu rithöfundum en lýsir jafnframt einstöku samfélagi Vestur-Íslendinga á sléttunum miklu í Norður-Ameríku. Jóhann Magnús varð metsöluhöfundur á árunum upp úr 1900 með hinum töfrandi frásögnum af Eiríki Hanssyni og Brasilíuförunum. Jón B. Guðlaugsson les.