Valin ljóð eftir Einar Sigurðsson í Eydölum

HÖFUNDUR

Einar Sigurðsson fæddist árið 1538, sonur prestshjónanna Guðrúnar Finnbogadóttur og Sigurðar Þorsteinssonar á Hrauni í Aðaldal í Þingeyjarsýslu. Hann átti eftir að lifa langa og viðburðaríka ævi á þeim miklu umbrotatímum sem framundan voru í íslensku þjóðlífi. Langþekktasta kvæði Einars er Kvæði af stallinum Kristí sem kallast vöggukvæði. Kvæðið er sungið sem jólasálmur og oft kennt við upphafslínu sína: Nóttin var sú ágæt ein. Það er alls 29 erindi. Kvæðið er þrungið ást og umhyggju fyrir litla Jesúbarninu sem liggur í lágum stalli, allslaus og varnarlaus eins og öll nýfædd börn. Það er freistandi að hugsa sér að Einar hafi ort það við vöggu eins af sínum mörgu börnum og raulað það við þau. Lesari er Ingólfur B. Kristjánsson.

Valin ljóð eftir Einar Sigurðsson í Eydölum

Einar Sigurðsson fæddist árið 1538, sonur prestshjónanna Guðrúnar Finnbogadóttur og Sigurðar Þorsteinssonar á Hrauni í Aðaldal í Þingeyjarsýslu. Hann átti eftir að lifa langa og viðburðaríka ævi á þeim miklu umbrotatímum sem framundan voru í íslensku þjóðlífi.

Langþekktasta kvæði Einars er Kvæði af stallinum Kristí sem kallast vöggukvæði. Kvæðið er sungið sem jólasálmur og oft kennt við upphafslínu sína: Nóttin var sú ágæt ein. Það er alls 29 erindi. Kvæðið er þrungið ást og umhyggju fyrir litla Jesúbarninu sem liggur í lágum stalli, allslaus og varnarlaus eins og öll nýfædd börn. Það er freistandi að hugsa sér að Einar hafi ort það við vöggu eins af sínum mörgu börnum og raulað það við þau.

Lesari er Ingólfur B. Kristjánsson.

No items found.
***