Piltur og stúlka
Piltur og stúlka er skemmtileg og áhugaverð smásaga eftir norsku skáldkonuna Magdalene Thoresen sem á sínum tíma var álitin í hópi fremstu rithöfunda síns tíma og mun hafa haft áhrif á ekki minni höfunda en Björnstjerne Björnsson og Henrik Ibsen. Reyndar giftist Ibsen stjúpdóttur hennar. Magdalene fæddist reyndar í Danmörku árið 1819 en fluttist til Noregs árið 1842 og kvæntist ekkjumanninum Hans Conrad Thoresen og tók að sér fimm börn hans frá fyrra hjónabandi. Saman eignuðust þau fjögur börn. Þegar maður hennar dó flutti hún aftur til Danmerkur og bjó í Kristjaníu þar til hún lést árið 1903. Þessi þýðing er fengin úr tímaritinu Ísafold frá árinu 1893. Þýðandi er ókunnur. Ingólfur B. Kristjánsson les.