Menn og menntir siðskiptaaldarinnar á Íslandi (2. hluti)

HÖFUNDUR

Hér á ferðinni annað bindið af fjórum í ritröðinni Menn og menntir siðskiptaaldarinnar á Íslandi og er þar fyrst og fremst verið að fjalla um þá biskupa Ögmund Pálsson og Gizur Einarsson. Er óhætt að segja að þetta sé lykilrit um þennan tíma og er umföllunin mjög ítarleg og góð. Þetta annað bindi kom út árið 1922 en áður hafði komið út rit um Jón biskup Arason sem gefið var út 1919. Þá kom þriðja bindið sem ber undirtitilinn Guðbrandur Þorláksson og öld hans út árið 1924 og fjórða og síðasta bindið sem nefnist Rithöfundar kom svo út árið 1926. Hafa þessi rit verið ófáanleg um nokkurn tíma og ætti því að vera fengur öllum þeim sem áhuga hafa á íslenskri sögu. Páll Eggert fæddist á Stóru-Vogum á Vatnsleysuströnd 3. júní 1883. Foreldrar hans voru Óli Kristján Þorvarðsson, steinsmiður í Reykjavík, og Guðrún Jakobína Eyjólfsdóttir. Páll lauk stúdentsprófi frá Lærða skólanum 1905, cand.phil.-prófi 1906, embættisprófi í lögfræði við HÍ 1918 og hlaut doktorsnafnbót við HÍ 1919 fyrir rit sitt um Jón biskup Arason. Ritverk Páls eru feikimikil að vöxtum og munar þar um ritaskrá Landsbókasafnsins og skrá yfir rit háskólakennara. Þá tók hann saman lögfræðingatal en er líklega þekktastur fyrir samantekt á Íslenzkum æviskrám. Auk þess má nefna Menn og menntir siðskiptaaldarinnar á Íslandi I-IV, Upptök sálma og sálmalaga í lútherskum sið á Íslandi, Jón Sigurðsson I-V, og Sögu Íslendinga IV, V, og fyrri hluta VI bindis. Jón B. Guðlaugsson les.

Menn og menntir siðskiptaaldarinnar á Íslandi (2. hluti)

Hér á ferðinni annað bindið af fjórum í ritröðinni Menn og menntir siðskiptaaldarinnar á Íslandi og er þar fyrst og fremst verið að fjalla um þá biskupa Ögmund Pálsson og Gizur Einarsson. Er óhætt að segja að þetta sé lykilrit um þennan tíma og er umföllunin mjög ítarleg og góð.

Þetta annað bindi kom út árið 1922 en áður hafði komið út rit um Jón biskup Arason sem gefið var út 1919. Þá kom þriðja bindið sem ber undirtitilinn Guðbrandur Þorláksson og öld hans út árið 1924 og fjórða og síðasta bindið sem nefnist Rithöfundar kom svo út árið 1926.

Hafa þessi rit verið ófáanleg um nokkurn tíma og ætti því að vera fengur öllum þeim sem áhuga hafa á íslenskri sögu.

Páll Eggert fæddist á Stóru-Vogum á Vatnsleysuströnd 3. júní 1883. Foreldrar hans voru Óli Kristján Þorvarðsson, steinsmiður í Reykjavík, og Guðrún Jakobína Eyjólfsdóttir. Páll lauk stúdentsprófi frá Lærða skólanum 1905, cand.phil.-prófi 1906, embættisprófi í lögfræði við HÍ 1918 og hlaut doktorsnafnbót við HÍ 1919 fyrir rit sitt um Jón biskup Arason.

Ritverk Páls eru feikimikil að vöxtum og munar þar um ritaskrá Landsbókasafnsins og skrá yfir rit háskólakennara. Þá tók hann saman lögfræðingatal en er líklega þekktastur fyrir samantekt á Íslenzkum æviskrám. Auk þess má nefna Menn og menntir siðskiptaaldarinnar á Íslandi I-IV, Upptök sálma og sálmalaga í lútherskum sið á Íslandi, Jón Sigurðsson I-V, og Sögu Íslendinga IV, V, og fyrri hluta VI bindis.

Jón B. Guðlaugsson les.

No items found.
***