Lynch Towers eigandinn

HÖFUNDUR

Lynch Towers eigandinn birtist fyrst á íslensku sem framhaldssaga í Þjóðviljanum á árunum 1912-1913. Á ensku kom hún fyrst út árið 1910 undir nafninu The Master of Lynch Towers. Sagan er hádramatísk ástar- og spennusaga, en höfundurinn var gríðarlega vinsæl á sínum tíma og skrifaði yfir 250 skáldsögur meðan hún lifði. Effie Adelaide Rowlands fæddist í Ástralíu árið 1859 og hennar raunverulega nafn var Effie Adelaide Maria Henderson. Ung flutti hún til Englands og giftist þar leikritaskáldinu Cecil Raleigh (Cecil Rowlands) og er höfundarnafn hennar þaðan komið. Hún skildi við Rowlands og giftist þá ítölskum tónlistarmanni, Chevalier Carlo Albanesi. Dóttir þeirra hjóna var hin kunna breska leikkona Meggie Albanesi sem lést einungis tuttugu og fjögurra ára gömul en hafði þá þegar getið sér góðs orðstírs fyrir leik á sviði og í kvikmyndum. Ingólfur B. Kristjánsson les.

Lynch Towers eigandinn

Lynch Towers eigandinn birtist fyrst á íslensku sem framhaldssaga í Þjóðviljanum á árunum 1912-1913. Á ensku kom hún fyrst út árið 1910 undir nafninu The Master of Lynch Towers. Sagan er hádramatísk ástar- og spennusaga, en höfundurinn var gríðarlega vinsæl á sínum tíma og skrifaði yfir 250 skáldsögur meðan hún lifði.

Effie Adelaide Rowlands fæddist í Ástralíu árið 1859 og hennar raunverulega nafn var Effie Adelaide Maria Henderson. Ung flutti hún til Englands og giftist þar leikritaskáldinu Cecil Raleigh (Cecil Rowlands) og er höfundarnafn hennar þaðan komið. Hún skildi við Rowlands og giftist þá ítölskum tónlistarmanni, Chevalier Carlo Albanesi. Dóttir þeirra hjóna var hin kunna breska leikkona Meggie Albanesi sem lést einungis tuttugu og fjögurra ára gömul en hafði þá þegar getið sér góðs orðstírs fyrir leik á sviði og í kvikmyndum.

Ingólfur B. Kristjánsson les.

No items found.
***