Ljóti andarunginn
H.C. Andersen er heimsþekktur fyrir ævintýri sín og Ljóti andarunginn er eitt af þeim þekktustu og bestu. Hér segir frá unga nokkrum sem virðist alls ekki eiga heima í því umhverfi sem hann fæðist í. Hann fær að heyra að hann sé ljótur og klaufalegur, en dag nokkurn uppgötvar hann sannleikann um sjálfan sig. Lesari er Ingólfur B. Kristjánsson. Birgir Ísleifur Gunnarsson sá um tónlist og hljóðvinnslu.