Jarteinabók Þorláks biskups 1199
Í Byskupa sögum sem Guðni Jónsson gaf út um miðja 20. öld er að finna þrjár svokallaðar jartegnabækur Þorláks helga Þórhallssonar, en jartegnasögur eru sögur af kraftaverkum sem gerðust fyrir áheit á einhvern helgan einstakling. Páll Jónsson biskup, eftirmaður Þorláks, lét safna slíkum sögum saman og tók alþýða manna ríkan þátt í því að þessar sögur urðu til. Það sem kannski er hvað skemmtilegast við þessar jartegnabækur er hvað þær gefa okkur mikla og góða innsýn inn í líf og skoðanir alþýðufólks á þessum tíma. Jarteinabók Þorláks byskups 1199 er safn af sögum sem Páll Jónsson biskup lét lesa upp á alþingi árið 1199 en þar var einnig lýst helgi Þorláks. Ingólfur B. Kristjánsson les.