Heljarslóðarorrusta

HÖFUNDUR

Sagan Heljarslóðarorrusta eftir Benedikt Sveinbjarnarson Gröndal kom fyrst út árið 1861 og er með kunnustu verkum hans. Er þetta gamansaga, þar sem meginsögusviðið er rammað inn af orrustunni við Solferino sem háð var árið 1859, en þar tókust á annars vegar sameinaður her Frakka undir stjórn Napóleons III. og her Sardiníu undir stjórn Viktors Emmanúels II. og hins vegar her Austurríkismanna undir stjórn keisarans Franz Jósefs I. Mun það hafa verið síðasta orrustan í veraldarsögunni þar sem þjóðhöfðingjar fóru sjálfir fyrir herjum sínum. Inn í atburðarásina spinnast svo fleiri samtímaatburðir, erlendir og innlendir. Sagan er skrifuð í stíl fornaldarsagna sem Benedikt gerir af stakri snilld og úr verður listileg frásögn sem kitlar hláturtaugarnar og spyr áleitinna spurninga um stríð og stjórnmál í leiðinni. Stórbrotið bókmenntaverk sem á erindi við alla tíma. Björn Björnsson les.

Heljarslóðarorrusta

Sagan Heljarslóðarorrusta eftir Benedikt Sveinbjarnarson Gröndal kom fyrst út árið 1861 og er með kunnustu verkum hans. Er þetta gamansaga, þar sem meginsögusviðið er rammað inn af orrustunni við Solferino sem háð var árið 1859, en þar tókust á annars vegar sameinaður her Frakka undir stjórn Napóleons III. og her Sardiníu undir stjórn Viktors Emmanúels II. og hins vegar her Austurríkismanna undir stjórn keisarans Franz Jósefs I. Mun það hafa verið síðasta orrustan í veraldarsögunni þar sem þjóðhöfðingjar fóru sjálfir fyrir herjum sínum. Inn í atburðarásina spinnast svo fleiri samtímaatburðir, erlendir og innlendir. Sagan er skrifuð í stíl fornaldarsagna sem Benedikt gerir af stakri snilld og úr verður listileg frásögn sem kitlar hláturtaugarnar og spyr áleitinna spurninga um stríð og stjórnmál í leiðinni. Stórbrotið bókmenntaverk sem á erindi við alla tíma.

Björn Björnsson les.

No items found.
***