Gull-Elsa (2. hluti)

HÖFUNDUR

Gull-Elsa er spennandi ástarsaga eftir E. Marlitt. Sögusviðið er skógarsvæði í Thüringen í Þýskalandi. Þangað flytur söguhetjan Elísabet ásamt fjölskyldu sinni, en föðurbróðir hennar er skógarvörður. Í kastala nálægt heimili Elísabetar býr Helena von Walde ásamt bróður sínum Rudolf, sem skömmu eftir að sagan hefst kemur heim úr langri utanlandsför. Fleiri búa í kastalanum en systkinin og hafa þau mikil áhrif á framgang mála og líf Elísabetar sem verður þar tíður gestur. E. Marlitt var dulnefni Eugenie John sem var afar vinsæll rithöfundur í Þýskalandi í sinni tíð. Hún fæddist í Arnstadt 5. desember 1825. Hún var annað barn foreldra sinna Ernst John og Jóhönnu Böhm, en fór ung í fóstur hjá Matthildi prinsessu í Schwarzburg-Sondershausen og dvaldi hjá henni í fjölda ára. Prinsessan sendi hana í söngnám til Vínarborgar, en það fór út um þúfur þegar stúlkan missti heyrnina. Dvölinni hjá prinsessunni lauk 1863 og fór þá Eugenie að skrifa fyrir alvöru. Árið 1865 var fyrsta verk hennar Postularnir tólf gefið út í þýsku vikuriti, en ári síðar kom út sagan um Gull-Elsu og varð hún feikivinsæl. Þar með var brautin rudd. Á meðan hún lifði voru gefnar út níu sögur til viðbótar og tvær að auki að henni látinni, en Eugenie John lést 22. júní 1887. Í öllum sögum hennar var aðal söguhetjan ung kona. Gull-Elsa kom út í íslenskri þýðingu eftir Jón Leví árið 1935. Kristján Róbert Kristjánsson les.

Gull-Elsa (2. hluti)

Gull-Elsa er spennandi ástarsaga eftir E. Marlitt. Sögusviðið er skógarsvæði í Thüringen í Þýskalandi. Þangað flytur söguhetjan Elísabet ásamt fjölskyldu sinni, en föðurbróðir hennar er skógarvörður. Í kastala nálægt heimili Elísabetar býr Helena von Walde ásamt bróður sínum Rudolf, sem skömmu eftir að sagan hefst kemur heim úr langri utanlandsför. Fleiri búa í kastalanum en systkinin og hafa þau mikil áhrif á framgang mála og líf Elísabetar sem verður þar tíður gestur.

E. Marlitt var dulnefni Eugenie John sem var afar vinsæll rithöfundur í Þýskalandi í sinni tíð. Hún fæddist í Arnstadt 5. desember 1825. Hún var annað barn foreldra sinna Ernst John og Jóhönnu Böhm, en fór ung í fóstur hjá Matthildi prinsessu í Schwarzburg-Sondershausen og dvaldi hjá henni í fjölda ára. Prinsessan sendi hana í söngnám til Vínarborgar, en það fór út um þúfur þegar stúlkan missti heyrnina. Dvölinni hjá prinsessunni lauk 1863 og fór þá Eugenie að skrifa fyrir alvöru. Árið 1865 var fyrsta verk hennar Postularnir tólf gefið út í þýsku vikuriti, en ári síðar kom út sagan um Gull-Elsu og varð hún feikivinsæl. Þar með var brautin rudd. Á meðan hún lifði voru gefnar út níu sögur til viðbótar og tvær að auki að henni látinni, en Eugenie John lést 22. júní 1887. Í öllum sögum hennar var aðal söguhetjan ung kona.

Gull-Elsa kom út í íslenskri þýðingu eftir Jón Leví árið 1935.

Kristján Róbert Kristjánsson les.

No items found.
***