Á fjörunni

HÖFUNDUR

Jón Trausti var einn vinsælasti rithöfundur Íslands á fyrstu áratugum 20. aldar, en hann lést fyrir aldur fram árið 1918. Sögur hans sem sprottnar eru úr íslenskum raunveruleika fundu sér samhljóm í hjörtum landsmanna. Það voru örlagasögur sem Íslendingar þekktu til af eigin raun. Til marks um það hvað Jón Trausti átti stóran sess í hjörtum sinnar samtíðar má t. a. m. vitna í orð Halldórs Kiljans Laxness úr bókinni Í túninu heima. Þar segir: ,,Jón Trausti, Guðmundur Magnússon frá Hrauntanga í Öxarfjarðarheiði, stendur mér fyrir hugskotssjónum sem einn mestur undramaður að verið hafi í íslenskri sagnasmíð fyrr og síðar. Allir vetur mínir heima eru tengdir minningunni um nafn þessa manns og verka hans.'' Sigurður Arent Jónsson les.

Á fjörunni

Jón Trausti var einn vinsælasti rithöfundur Íslands á fyrstu áratugum 20. aldar, en hann lést fyrir aldur fram árið 1918. Sögur hans sem sprottnar eru úr íslenskum raunveruleika fundu sér samhljóm í hjörtum landsmanna. Það voru örlagasögur sem Íslendingar þekktu til af eigin raun.

Til marks um það hvað Jón Trausti átti stóran sess í hjörtum sinnar samtíðar má t. a. m. vitna í orð Halldórs Kiljans Laxness úr bókinni Í túninu heima. Þar segir: ,,Jón Trausti, Guðmundur Magnússon frá Hrauntanga í Öxarfjarðarheiði, stendur mér fyrir hugskotssjónum sem einn mestur undramaður að verið hafi í íslenskri sagnasmíð fyrr og síðar. Allir vetur mínir heima eru tengdir minningunni um nafn þessa manns og verka hans.''

Sigurður Arent Jónsson les.

No items found.
***