Hjálp á Hlusta.is

Almennt um hlusta.is

Hvernig segi ég upp áskrift?

Hvernig stjórna ég lestrinum?

Áskrift fyrir einstaklinga og heimili

Áskrift fyrir bókasöfn, stofnanir og vinnustaði

Efnið sjálft

Bókmenntakynningar á hlusta.is

Almennt um hlusta.is

Hlusta.is býður þér nú þegar upp á þúsundir upplestra af vönduðu og fjölbreyttu efni og stöðugt bætist nýtt efni við. Með því að gerast áskrifandi að Hlusta.is opnast þér heill heimur af fróðleik og afþreyingarefni sem hægt er að hlusta á í rólegheitum heima hjá sér eða hvar sem er. Já, nú geturðu hvílt þig  á bókinni annað slagið og hlustað á sögur eða fróðleiksþætti, eins og þig hefur alltaf langað til.

Hvernig segi ég upp áskrift?

Hægt er að segja upp áskrift í síma 551 6430 eða með því að senda
tölvupóst á netfangið hlusta@hlusta.is og óska eftir uppsögn á áskrift.

Hvernig stjórna ég lestrinum?

Þú velur þér efnisflokk á forsíðunni, t.d. íslenskar skáldsögur (sjá mynd #1). Því næst velur þú sögu til að hlusta á, t.d. Ást og auður (sjá mynd #2). Þá opnast ný síða þar sem aðeins viðkomandi upplestur er að finna. Þú velur númer lestrarins til hægri í glugganum fyrir söguna (sjá mynd #3), þ.e. hvar í þessari sögu þú vilt byrja núna. Ef þú hefur ekki hlustað á söguna áður velurðu 1. lestur, en lestur með hærra númeri ef þú ert lengra kominn. Lesturinn byrjar um leið og þú hefur smellt á númer lestrarins. Athugið að stuttar sögur eða ljóð og ævintýri eru oft bara einn lestur og þá án númers. Þú byrjar á að smella á þennan eina lestur sem er oftast nafn sögunnar og alltaf til hægri eins og áður sagði.

Þegar smellt hefur verið á þann lestur sem óskað er eftir byrjar sagan og heldur áfram milli lestra uns gefin er skipun um að stoppa. “Spilarinn”, það sem þú sérð í miðjum glugganum, gefur þér nokkra möguleika til að stjórna eftir að lestur hefur hafist (sjá mynd #4). Ef þú vilt stoppa alveg og byrja upp á nýtt ýtirðu á ferninginn sem táknar “Stoppa”. Ef þú vilt gera hlé en halda áfram síðar frá sama stað (þú mátt þá ekki fara út úr þessari valmynd, það jafngildir Stopp) ýtir þú á “Hlé” (e; pause) sem eru takki með tvö lóðrétt strik. Þegar þú svo vilt byrja aftur þar sem frá var horfið ýtir þú á rauða takkann fyrir “Byrja” (e; start).

Ef þú hefur ekki byrjað á réttum stað (ert búinn að hlusta á hluta sögunnar) getur þú notað örvarnar sem vísa til hægri og vinstri til að hoppa milli lestra. Hægri örin lætur þig hoppa á næsta lestur en vinstri örin næsta á undan þeim sem er að spilast.  Þú þarft hvorki að ýta á Stopp né Hlé heldur getur hoppað svona á milli lestra þótt verið sé að spila uns þú hefur fundið rétta staðinn.

Rauðu tölurnar tvær í spilaranum sýna annars vegar (sú fyrri) hvað er liðið af þessum lestri og hin hvað tölvan er búinn að sækja mikið af lestrinum. Þegar allur lesturinn er komin hættir sú aftari að breytast en sú fyrri sýnir áfram hvernig lestrinum miðar.

Áskrift fyrir einstaklinga og heimili

Það er ótrúlegt en satt að þið getið gerst áskrifendur að hlusta.is fyrir einungis 1.790- kr. á mánuði. Fyrir þessa upphæð hafa áskrifendur fullan aðgang að öllum hljóðskrám sem nú þegar eru á Hlusta.is og líka öllum nýjum upplestrum.  Núna er sett inn nýtt efni vikulega og tilstendur að fjölga þeim dögum sem nýtt efni bætist við. Í hverri viku bætast t.d. við lestrar úr öllum framhaldssögunum sem eru í lestri fyrir utan margvíslegt annað efni svo sem ljóð, barnasögur og fróðleikur af ýmsum toga.

Áskrifendur fá líka reglulega sent í tölvupósti fréttabréf um það sem er döfinni hverju sinni auk þess sem þeir geta skráð sig á Facebook síðuna okkar og tekið þátt í umræðu um efnið.

Áskrift fyrir bókasöfn, stofnanir og vinnustaði

Hlusta.is býður bókasöfnum, skólum, leikskólum, dvalarheimilum, stofnunum og vinnustöðum þar sem margir eru samankomnir upp á sérstök áskriftarkjör. Vegna þess hve slíkir staðir eru ólíkir hvetjum við alla til að hafa samband við okkur og semja um sérkjör.

Efnið sjálft

Til þæginda fyrir áskrifendur skiptum við hljóðbókunum okkar niður í eftirfarandi flokka:

Íslenskar skáldsögur. Hér má finna fjölbreytt safn skáldsagna eftir íslenska höfunda, allt frá þeim fyrstu sem skrifuðu skáldsögur á íslensku til rithöfunda úr samtímanum.

Íslenskar smásögur. Hér bjóðum við upp á smásögur eftir íslenska höfunda, ýmist samtímahöfunda eða rithöfunda liðinna alda.

Þýddar skáldsögur. Hér ættu allir að geta fundið eitthvað áhugavert að hlusta á, hvort sem það eru spennusögur, ástarsögur, uppvaxtarsögur, ævintýrasögur eða heimsbókmenntir. Sem dæmi má nefna perlur eins og Góða dátann Svejk, sögur af spæjaranum Sherlock Holmes og ritröðina um síðasta móhíkanann.

Þýddar smásögur. Þessi flokkur hefur að geyma smásögur eftir fjölbreyttan hóp erlendra höfunda. Þar má til dæmis nefna Edgar Allan Poe, Kate Chopin, Saki, Willa Cather, O. Henry og Guy de Maupassant.

Ævisögur og frásagnir. Hér má finna ferðasögur ævintýraþyrstra ferðalanga, frásagnir af einstöku lífshlaupi og margt fleira.

Bækur á ensku. Margir hafa gaman af því að hlusta á sögur á ensku og hér má finna fjölbreytt safn hljóðbóka, allt frá reyfurum til heimsbókmennta. Þetta er líka tilvalin leið til að þjálfa sig í enskunni á skemmtilegan hátt.

Íslendingasögur og fleiri fornrit. Þessi flokkur hefur að geyma Íslendingasögur, Íslendingaþætti, Fornaldarsögur Norðurlanda, Heimskringlu, Snorra-Eddu og fleiri öndvegisrit bókmenntaarfsins okkar.

Barnasögur og ævintýri. Hér er að finna íslensk og þýdd ævintýri, þjóðsögur, dæmisögur og aðrar sögur sem ætlaðar eru fyrir börn.

Ljóð. Hér má finna stök ljóð jafnt sem heilar ljóðabækur eftir öndvegisskáld eins og Einar Benediktsson, Jóhann Jónsson, Stephan G. Stephansson og fleiri.

Þjóðsögur. Þessi flokkur hefur að geyma bæði stakar þjóðsögur og þjóðsagnasöfn. Má þar til dæmis nefna Búkollu, Bakkabræður og sögur af álfum úr safni Jóns Árnasonar.

Greinar. Hér má finna greinar um allt milli himins og jarðar - menn, málefni og atburði.

Safnrit. Þessum flokki tilheyra rit með efni af ólíku tagi.

Viðtöl. Hér má finna viðtöl og samtalsbækur.

Leikrit. Í þessum flokki eru fáein leikrit sem ýmist eru upplesin í heild af einum lesara eða leikin eins og útvarpsleikrit.

Jólasögur. Jólasögur úr ýmsum áttum prýða þennan flokk, bæði íslenskar og þýddar.

Almennur fróðleikur. Hér má finna margs konar efni fyrir fróðleiksfúsa hlustendur.

Þjóðlegur fróðleikur. Þessi flokkur er svipaður og sá næsti á undan, nema hvað hér er um að ræða efni sem tengist íslenskri sögu og menningu á einhvern hátt.

Saga. Þessi flokkur inniheldur ýmislegt efni af sagnfræðilegum toga.

Að lokum má nefna að sumar hljóðbækur tilheyra fleiri en einum flokki.

Bókmenntakynningar á hlusta.is

Á hlusta.is munum við bjóða reglulega upp á kynningar á bókmenntum og einstökum höfundum til að hjálpa áskrifendum okkar að setja sig inn í ákveðin tímabil í bókmenntasögunni og verk einstakra höfunda.